Brostu, þá líður öllum betur!
Niðurtalningin stóra...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1401 dögum
Ýmislegt sniðugt
28.04.2008 21:02:16 / svabja

Ólafía Rún Svansdóttir

Skírnin gekk rosalega vel í gær og er það allt öllum þeim sem hjálpuðu okkur við þetta að þakka! Takk fyrir ómetanlega hjálp!!!
Hún heitir Ólafía Rún og er Svansdóttir. Ólafía eftir ömmu Laugu sem hét Ólafía Guðlaug og Rún eftir pabba hennar Tönju sem hét Rúni! Fullkomið nafn á fullkominni stelpu!
Takk fyrir allt allir sem komu og allir sem hjálpuðu og bara allt...
Kveðja,
Svanur, pabbi hennar Ólafíu Rúnar.8)

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 11:06:59 / svabja

Skírnardagurinn stóri

Nú situr hún litla snúllan okkar í rólunni sinni og steinsefur! Á morgun verður hún skírð og þá getur maður loksins hætt að segja snúlla, prinsessa o.s.frv.
Unidrbúningurinn er í fullum gangi og með ómetanlegri hjálp frá ættingjum og vinum verður morgundagurinn æðislegur!
Hlakka til að geta sagt ykkur nafnið á henn eftir morgundaginn!
Kveðja,
SvaBja8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 21:37:18 / svabja

Myndir - yndir - dir - ir - r

Það eru komnar ferskar myndir á
barnaland! Endilega kíkið og kvittið!
Kv,
SvaBja8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 21:16:46 / svabja

Barnalandssíðan

Ef ykkur langar að sjá myndir af prinsessunni, farið þá inn á http://barnaland.is/barn/66430 og sendið beiðni um aðgang. Þá sendi ég leyniorðið um hæl!
Ta, ta,
SvaBja 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 17:16:48 / svabja

...og allt í einu breyttist heimurinn...

Fimmtudaginn 10. apríl 2008 klukkan 15:45 eftir 35 tíma kvalarfulla bið, fæddist hún, fallegasta stúlkan í öllum heiminum, og allt í einu breyttist heimurinn! Það eru komnar myndir á barnaland.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 14:57:51 / svabja

Já, halló!

Já kæru lesendur og aðrar endur, þá eru bara 2 heilir dagar í setta dagsetningu, ef sumir ætla ekki að láta bíða eftir sér eins og stórstjörnur gera. En þó ég viti að það sé stjarna sem kemur út þá vona ég nú að hún láti ekki bíða mikið lengur eftir sér en þessa 2 daga sem eftir eru.
Nú er búið að vera mikið að gera í vinnunni En svo fer ég í mánaðarleyfi þegar ég er faðir orðinn.
Endilega fylgist með! ;)
Kv,
SvaBja8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 17:49:04 / svabja

Páskafríhíhíhí!

Jæja þá erum við komin í páskafrí, loksins, loksins! Í dag fórum við og sóttum barnabílstólinn sem við leigjum frá TM og fórum svo með bílinn í smurningu, sem var eiginlega dýrara en að leygja stólinn í 8 mánuði... :$
Á morgun förum við svo í mæðraskoðun og þá kemur vonandi í ljós að allt sé eins og það á að vera. En svo verður farið í sveitina yfir páskana og slappað af!
Ekkert mikið að frétta annars. En bumbus/ína er bara að kokkast í bumbunni og gæti látið sjá sig hvenær sem er! Vona bara að það verði gæfur hrútur eins og pabbi sinn. hehe. Annars er spennan að verða yfirþyrmandi úfff! En þetta kemur allt saman og ég veit að allt á eftir að ganga mjög smurt.
Kv,
SvaBja8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 22:47:04 / svabja

Afsökunarbeiðni...

Ég segi eins og Jón Ársæll í Sjálfstæðu fólki, ,,Komiði sæl!"

Í dag var skólaskemmtun í Korpuskóla. Hún er haldin 2. hvert ár og er stórt og mikið verkefni fyrir tónmenntakennara. Það er ástæðan fyrir það hve lítið hefur verið skrifað hérna undanfarið.

Annars gengur allt rosa vel hjá okkur. Komin 35 vikur á leið í dag og erfinginn er búinn að skorða sig. Tilbúin að heilsa heiminum og okkur öllum sem munum móta líf þess! Gríðarleg spenna!
Annars lítið í fréttum. Páskafrí eftir næstu viku og getur enginn beðið, frá yngsta nemanda til elsta kennara! ;)

Lítið gerst í ljóðlistinni undanfarið utan þess að ég samdi vögguljóð fyrir komandi vökunætur og læt ég það flakka með.

Vögguljóð

Svefnblæjan flýgur um sveitir og borg,
þurrkar upp tár eftir þrúgandi sorg.

Leggðu´aftur augun þú leggur í ferð
um draumheima fagra af dýrustu gerð.

Lúlla þú, lúlla þú nú.

Værðin hún sigrar nú vökuna´um stund.
Sofnar svo heimurinn sægrænum blund.

Bænirnar segðu með barnslegum róm.
Sækja´að þér englar með seiðandi hljóm.

Lúlla þú, lúlla þú nú.

Í svartasta myrkrinu sérðu´ekki neitt
En inni´í því getur þar ekkert þig meitt.

Leggðu´aftur augun þú leggur í ferð
um draumheima fagra af dýrustu gerð.

Lúlla þú, lúlla þú nú.
Lúlla þú, lúlla þú nú.

Endilega kíkið svo á barnalandssíðuna og skoðið bumbumyndir. Lykilorðið er nafn besta hundar í heimi! :d

Kv,
SvaBja8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 17:01:11 / svabja

Bóndadagurinn

Já þá er hann runninn upp, bóndadagurinn sjálfur. Ég lét það nú vera að hoppa hálf nakinn á annarri löppinni í kring um blokkina í morgun, í þetta skiptið! Hinsvegar hefur hún Tanja mín lagt mér línurnar fyrir konudaginn, því hún gaf mér litla gjöf og eldaði dýrindis máltíð fyrir mig. Þessi elska.

Ég lít nú þannig á að bóndadagur og konudagur séu okkar Valentínusardagur. Þannig að ég segi burt með þennan ameríska dag Valentínusar. Höldum okkur bara við íslenskt já takk!

Kveðja,
SvaBja8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 17:35:47 / svabja

Mæðraskoðun

Um dagin fórum við í mæðraskoðun eftir 28 vikur. Þar eru gerðar ýmsar rannsóknir og mælingar og hlustað á hjartslátt. Hinsvegar var hlustunartækið bilað í þetta skiptið og reyndi ljósmóðirin því að hlusta með hlustunarpípu. Það gekk ekki svo að við vorum mjög heppin því að hún varð að nota sónartækið til að athuga hjartsláttinn, svo við fengum að sjá litla krílið. Það eru nefninlega ekki teknar sónarmyndir eftir 20. viku, svo við fengum svona bónusmyndir.

Ljósmóðirin var gapandi yfir myndunum og sagðist aldrei hafa séð svona skýrar sónarmyndir. Við sáum bara hreinlega beint í andlitið á barninu og sáum munninn smjatta og geyspa, tunguna koma út, augnsvipinn og nefið. Þetta var alveg hreint magnað, fjallmyndarlegt barn þarna á ferðinni (eins og foreldrarnir ;0). Við fengum tvær myndir sem eru komnar á barnalandssíðuna en þær eru nú kannské ekki alveg eins skýrar og þær voru á skjánum! En endilega kíkið á þær.

Kveðja,
SvaBja8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 11:04:08 / svabja

Fæðingarár frumburðarins!

Óskum öllum gleðilegs árs og þökkum fyrir það liðna! Sjáumst svo hress, á því sem ég kýs að kalla, fæðingarári frumburðarins!

Kveðja,
SvaBja og co. 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 17:45:21 / svabja

Pæling dagsins

Hver man ekki eftir æsingnum í kring um símaauglýsinguna góðu þar sem síðasta kveldmáltíðin er notuð til að auglýsa 3G símann hjá Símanum. Allt varð vitlaust því mönnum fannst að verið væri að afbaka hina heilögu sögu.

Nú virðist vera munur á því hver afbakar söguna eða hvernig sagan er afbökuð því nú er t.d. verið að sýna jóladagatal á Stöð 2 sem heitir ,,Jesús og Jósefína". Skemmtilegir þættir finnst mér. En enginn sem tuðaði yfir símaauglýsingunni segir neitt við ,,Jesús og Jósefínu.

Í þáttunum fer Jósefína aftur í tímann til Betlehem, til þess tíma er Jesús var lítill drengur. Þau verða bestu vinir og Jesús kemur m.a. með henni yfir í nútímann og lendir í vandræðum með að komast aftur heim til sín. Í einum þættinum gleymir svo Jósefína meira að segja símanum sínum og Jósep, stjúpfaðir Jesú finnur símann og skilur ekkert í þessu apparati. Er ekki verið að afbaka söguna þarna jafnvel enn grófara en í umdeildri símaauglýsingu.

Manni finnst stundum skrítið þegar menn rísa upp á afturlappirnar og gera allt vitlaust í þjóðfélaginu út af einhverju en standa svo á öllum fjórum og bíta gras þegar eitthvað annað, lítið skárra kemur upp. Geta menn ekki verið aðeins samkvæmari sjálfum sér, svona einu sinni.

Mér finnst hvorutveggja bara nokkuð skemmtilegt, auglýsingin og jóladagatalið og nenni ekki öðru en að halla mér aftur og njóta sýningarinnar.

Þetta var pæling dagsins, kveðja,
SvaBja8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 12:44:59 / svabja

Eitt ljóð

Ákvað að skella inn einu skemmtilegu ljóði! Innihald ljóðsins á sér enga stoð í mínum raunveruleika, en þetta er bara svona skemmtilegur leikur að orðum. Á kannské við þá sem eiga í sálarkreppu en láta það ekki sjást...

Ekki ekki...
Ég græt á hverju kveldi.
En þó sjást engin tár
og það heyrist enginn ekki.
Og ef það heyrist ekki,
og ef það sést ekki,
þá er það ekki!
Er það ekki?
Ég veit ekki!!!
SvaBja8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 18:41:14 / svabja

Ennþá allt að gerst

Jæja þá erum við komin inn í nýju fínu íbúðina okkar í Gullenginu! Síðasta helgi fór öll í það að gera hana fína og flotta á meðan Tanja var úti í Köben að versla föt á komandi kríli. Mig langar að nota tækifærið og þakka ómetanlega hjálp frá bræðrum, vinum og frænda. Steini, Billó, Siggi O, Stebbi, Grétar, Kristján Magg og Logi, þakka ykkur endalaust fyrir, íbúðin er æðisleg! Og Grétar veggurinn á að vera BRÚNN!!" hehe

Við sváfum fyrstu nóttina í íbúðinni síðustu nótt og var sú reynsla bara mjög góð! Í dag fórum við svo í 20 vikna sónar til að skoða erfingjann. Hann/hún hefur stækkað ekkert smá. Á einni myndinni leit hann/hún beint í ,,linsuna" og á annari snéri hann/hún baki í okkur en setti upp þumalinn eins og hann/hún væri að segja ,,Allt í góðu hérna". Þið getið vonandi séð myndir á barnalandi von bráðar!

Nóg í bili, kveðja
SvaBja8) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 09:52:29 / svabja

Orð í munni ófæddra

Jæja komið þið sæl! Mig langar að segja ykkur frá því að nú erum við Tanja búin að stofna barnalandssíðu þar sem við setjum orð í munn okkar ófædda engils. En þar er líka að finna skemmtilegar myndir að utan sem að innan.

http://barnaland.is/barn/login.aspx?barnId=66430&sub=False

Endilega kíkið við og kvittið fyrir...

SvaBja8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10